Morgunvaktin

Upplýsingaóreiða, Úganda og Chagos-eyjar

Upplýsingaóreiða er vandamál í heilbrigðismálum eins og mörgu öðru og misgóðar upplýsingar um ýmislegt sem viðkemur mat, sjúkdómum og meðferðum flæða um internetið. Hvaða áhrif hefur þetta? Það er meðal þess sem við ræddum við Unni Önnu Valdimarsdóttur prófessor í faraldsfræði, sem nýverið tók líka við starfi forseta heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands.

Um það bil í miðri Afríku er ríkið Úganda. Og þar, í höfuðborginni Kampala, býr Þórhildur Ólafsdóttir útvarpskona. Þórhildur verður með okkur á Morgunvaktinni í vetur, hún segir frá Úganda og lífinu þar og því sem á daga hennar drífur.

Bresk stjórnvöld tilkynntu í síðustu viku þau ætli afhenda yfirráð á Chagos-eyjaklasa í Indlandshafi yfir til eyríkisins Máritíus. Bretland og Máritíus hafa deilt um þennan afskekkta eyjaklasa - sem hefur verið kallaður síðasta nýlenda Breta í Afríku - áratugum saman. Það flækir málin á einni Chagos-eyja er stór bandarísk herstöð. Íbúar eyjaklasans voru neyddir heiman til rýma fyrir herstöðinni. Þeir og afkomendur þeirra hafa barist fyrir því snúa aftur heim - en þeim líst ekki endilega vel á nýjustu fréttir. Vera Illugadóttir sagði frá.

Tónlist:

Hljómsveit Magnúsar Ingimarssonar, Ingibjörg Smith - Áður í iðgrænum lundi

Tillotson, Johnny - Poetry in motion.

Stórsveit Reykjavíkur - Ása.

Mathew Amone Watmon - Otwenge.

Olamide, Asake - New Religion.

Frumflutt

9. okt. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Morgunvaktin

Morgunvaktin

Umsjónarmenn eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.

Þættir

,