Morgunvaktin

Heimsglugginn, sameining sveitarfélaga og upplýsingaóreiða

Bogi Ágústsson ræddi við Hjálmar Árnason, fyrrverandi þingmann, um kosningar til færeyska þingsins eftir þrjár vikur. Hjálmar er af færeyskum ættum og fylgist vel með stjórnmálunum þar. Bogi ræddi einnig um misvísandi ástæður sem bandarískir ráðamenn hafa gefið fyrir árásum sínum á Íran.

Kosið verður um sameiningu Árneshrepps og Kaldrananeshrepps síðar í mánuðinum. Við spjölluðum við Finn Ólafsson, sem fer fyrir samstarfsnefnd sveitarfélaganna.

Elfa Ýr Gylfadóttir, framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar, kom svo í þáttinn og ræddi um ógnir við lýðræðislega ferla hér á landi. Netárásir, upplýsingaóreiða og erlend afskipti af kosningum voru umræðuefnið.

Tónlist:

Harmonikutríó Jóns Sigurðssonar - Rælar (syrpa).

Chris Potter - Dream of home.

Bjartmar Guðlaugsson - Bissí Krissí.

Will Vinson o.fl. - Cherry time.

Birt

5. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,