Morgunvaktin

Kjarabætur þingmanna, Berlínarspjall og Fyrsti bjórsopinn

Kauphækkun alþingismanna og æðstu embættismanna hefur valdið gremju, m.a. innan verkalýðshreyfingarinnar. Hækkunin er meiri en launafólk samdi um í síðustu samningum. Katrín Ólafsdóttir, vinnumarkaðshagfræðingur og dósent við HR, ræddi málið sem rakið er til mistaka hjá Fjársýslu ríkisins fyrir nokkrum árum og ekki hefur verið undið ofan af. Þá fór hún yfir kjaraákvarðanir þingmanna í Danmörku, Noregi og Svíþjóð en misjafnt er hvaða aðferðum er beitt.

Arthur Björgvin Bollason sagði frá fundi Merz kanslara og Trumps forseta í Hvíta húsinu í síðustu viku. Hann gekk vel, öfugt við fundi bandaríska forsetans með öðrum starfsbræðrum upp á síðkastið.

Arthur talaði líka um dálæti Þjóðverja á Ítalíu en hann var staddur í Toskana.

Í síðasta hluta þáttarins sagði Friðrik Rafnsson þýðandi frá bókinni Fyrsti bjórsopinn og fleiri smálegar lífsnautnir eftir Philippe Delerm sem er nýkomin út á íslensku. Í henni eru dregnar upp myndir af hversdagslegum athöfnum og augnablikum sem minna okkur á njóta og meta allt hið smáa sem auðgar lífið.

Tónlist:

Á Sprengisandi - Ólafur Þórðarson,

Hann gat ekki setið kyrr - Rakel Sif Sigurðardóttir,

Amsterdam - Jacques Brel,

Mathilde - Jacques Brel.

Frumflutt

10. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Morgunvaktin

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,