Morgunvaktin

Heimsglugginn, auðlindagjöld og Laxdæla

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra var gestur Boga Ágústssonar í Heimsglugganum þennan morguninn. Þau ræddu alþjóðamálin vítt og breitt og stöðu Íslands í viðsjárverðum heimi.

Ríkisstjórnin boðar auðlindastefnu og auðlindagjöld - réttlát auðlindagjöld, samkvæmt stefnuyfirlýsingunni. Undir eru allar sameiginlegar auðlindir þjóðarinnar. Indriði H. Þorláksson, fyrrverandi ríkisskattstjóri, hefur lengi velt fyrir sér gjaldtöku af auðlindum.

Í síðasta hluta þáttarins ferðuðumst við aftur í tímann með Vilborgu Davíðsdóttur rithöfundi. Hún hefur valið sér persónur og sögusvið liðinna alda skrifa um í bókum sínum og stendur mikið til: Annars vegar ætlar hún flytja sjálfa Laxdælu á Sögulofti Landnámssetursins í Borgarnesi og hins vegar kenna spuna á snældu á Landnámssýningunni í Aðalstræti í Reykjavík.

Tónlist:

Hljómsveit Magnúsar Ingimarssonar, Vilhjálmur Vilhjálmsson - Það er bara þú.

Páll Stefánsson, Gísli Ólafsson - Lækurinn (Stemma Páls og Gísla).

Frumflutt

30. jan. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Morgunvaktin

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,