Morgunvaktin

Alþjóðamál, skyldur stjórnmálamanna í upplýsingaóreiðu og landsmót hestamanna

Bogi Ágústsson ræddi við Erling Erlingsson hernaðarsagnfræðing í Heimsglugganum. Þeir fóru yfir stöðuna í alþjóðamálum, stríð og frið.

Vilhjálmur Árnason heimspekingur kom svo í þáttinn en hann tekur þátt í umræðum á fundi þjóðaröryggisráðs í dag um áhrif upplýsingaóreiðu á lýðræði og þjóðaröryggi. Hann fjallar um skyldur stjórnmálamanna í heimi þar sem almenningur á erfitt með greina hvað er satt og hvað ekki.

Hestar og knapar áttu svo hug okkar allan í síðasta hluta þáttarins. Það styttist í Landsmót hestamanna sem þessu sinni er haldið á Hólum í Hjaltadal. Það er heilmikið mál undirbúa svo mót eins og framkvæmdastjórinn Áskell Heiðar Ásgeirsson sagði okkur frá.

Tónlist:

Hljómar - Miðsumarnótt.

Lónlí blú bojs - Mamma grét.

Sigurður Ólafsson - Káti hestamaðurinn.

Sigurður Ólafsson - Meira fjör.

Birt

18. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,