Morgunvaktin

Mannréttindastofnun Íslands hefur tekið til starfa

Fyrsti gestur þáttarins var Margrét María Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri nýstofnaðrar Mannréttindastofnunar Íslands. Hún sagði frá hlutverki og verkefnum stofnunarinnar sem enn er verið koma á fót og spjallað var um mannréttindi vítt og breitt.

Björn Malmquist fréttamaður í Brussel fór yfir úrslit forsetakosninganna í Póllandi en síðari umferð fór fram í gær. Hann talaði líka um harða gagnrýni 20 Evrópusambandsríkja á lög í Ungverjalandi sem ætlað er skerða réttindi hinsegin fólks og framtíðarsýn Ursulu Von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar ESB, fyrir sambandið.

Óveðri er spáð á landinu. Kristín Hermannsdóttir veðurfræðingur fór yfir horfurnar. Einnig var rabbað um blíðuna í nýliðnum maí.

Tónlist:

Austurstræti - Laddi,

Glugginn - Flowers,

Coffee song - Marína Ósk Þórólfsdóttir,

I'll follow the sun - Bítlarnir,

Carpenters - Rainy Days and Mondays - Carpenters,

Dust in the wind - Kansas.

Frumflutt

2. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Morgunvaktin

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,