Morgunvaktin

Vísindavefurinn, ágæti letinnar og sígild tónlist

Við fjölluðum um Vísindavefinn og Þorstein Vilhjálmsson prófessor sem lést í maí. Þorsteinn hafði veg og vanda af stofnun Vísindavefsins sem hefur vaxið og dafnað í aldarfjórðung og er nánast ótæmandi þekkingarbrunnur sem gagnast landsmönnum öllum í starfi og leik. Jón Gunnar Þorsteinsson ritstjóri vefsins kom til okkar og sagði frá ríkri þörf Þorsteins fyrir miðla þekkingu til almennings.

Í spjalli okkar við Arthur Björgvin Bollason á þriðjudag kom fram ungir Þjóðverjar eru ekki jafn duglegir og eldra fólkið. Þeir eru jafnvel latir. Í framhaldinu spunnust heimspekilegar vangaveltur um tilgang lífsins; lifum við til vinna eða vinnum við til lifa? Af þessu tilefni endurlékum við viðtal frá 2021 um ágæti letinnar, Óðinn Svan Óðinsson ræddi þá við Sigurð Kristinsson heimspeking.

Magnús Lyngdal var svo með umfjöllun um sígilda tónlist. Shostakocich er viðfangsefni dagsins - Magnús sagði okkur frá tónskáldinu frá Pétursborg og lék brot úr nokkrum verkum.

Tónlist:

Tom Jones - Green green grass of home.

Spilverk þjóðanna - Lazy Daisy.

Frumflutt

6. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Morgunvaktin

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,