Morgunvaktin

Hjúskaparlögum breytt, Danmörk og tengdasyni Trumps mótmælt í Albaníu

Við ræddum um hjúskaparlögin í þætti dagsins. Breytingar á þeim standa fyrir dyrum, meðal annars er lagt til hægt verði óska lögskilnaðar án sérstakrar ástæðu. Hrefna Friðriksdóttir, formaður sifjalaganefndar, prófessor og deildarforseti við Lagadeild Háskóla Íslands, ræddi þetta.

Borgþór Arngrímsson sagði okkur tíðindi frá Danmörku. Stjórnmál, íþróttir og skyr komu meðal annars við sögu.

Vera Illugadóttir sagði svo frá mótmælum í Albaníu, en þau hafa staðið yfir undanfarið vegna áforma um lúxushótel í suðurhluta landsins, þar sem þar til nýlega var skilgreint náttúruverndarsvæði.

Tónlist frá útsendingarlogg 2026-06-10

María Baldursdóttir - Eldhúsverkin.

Benni Hemm Hemm, Kórinn - Ljósið.

Birt

10. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,