Morgunvaktin

Skógrækt, Madagascar og tangó

Við fjölluðum um tré og skóga. Við sáum frétt um daginn þar sem sagði skóglendi Reykjavíkur væri 576 milljarða króna virði. Það er fjárhæð og hún er fundin með sérstakri viðurkenndri aðferðafræði. Við spjölluðum um þessa staðreynd; um tré og skóga í Reykjavík - og; um takmörkun á umferð um Heiðmörk - gróðurvin höfuðborgarbúa. Jóhannes Benediktsson, formaður Skógræktarfélags Reykjavíkur, kom til okkar.

Við ræddum svo við Þórhildi Ólafsdóttur. Hún er ekki heima í Úganda í dag heldur á eyjunni Madagaskar úti fyrir austurströnd Afríku. Þar er fjölskrúðugt dýralíf og þar býr meðal annars lemúrinn sem Þórhildur sagði okkur frá, ásamt fleiru forvitnilegu sem fyrir augu ber á þessari athyglisverðu eyju.

Síðasta hluta þáttarins lögðum við svo undir tangó, í bæði tali og tónum. Jón Sigurður Eyjólfsson, tónlistarmaður og rithöfundur, lék tangó á gítarinn og sagði sögur.

Tónlist:

Ellen Kristjánsdóttir - Hjá lygnri móðu.

Frumflutt

23. apríl 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Morgunvaktin

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,