Morgunvaktin

Efnahagsmál, Berlínarspjall og fréttaljósmyndir

Stjórnvöld kynntu tímabundnar efnahagsaðgerðir á föstudaginn, einkum til þess bregðast við stöðu mála úti í heimi og hækkun oliuverðs. Við ræddum um aðgerðirnar og líka um umræður um þjóðarsátt og hvað gæti falist í henni þegar Erna Björg Sverrisdóttir aðalhagfræðingur Arion banka kom til okkar.

Við fjölluðum líka um fréttaljósmyndun. Verðlaun Blaðaljósmyndarafélagsins voru veitt á laugardaginn; þau hlaut Golli, Kjartan Þorbjörnsson, ljósmyndari á Heimildinni. Hann hefur verið í faginu í hátt í 40 ár. Golli drakk með okkur kaffi og spjallaði um ljósmyndir og ljósmyndun.

Arthúr Björgvin Bollason var á sínum stað með Berlínarspjall og fór meðal annars með okkur inn á þýska stjórnarheimilið - þar er stormasamt þessa dagana. Við ræddum líka um vorið í Þýskalandi, sperglana og kirsuberjatréin.

Tónlist:

Herbert Grönemeyer - Der Weg.

Birt

14. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,