Morgunvaktin

Alþjóðamál og konur, Berlínarspjall og handbolti

Alþjóðamál og friður voru til umræðu, sem og staða kvenna. Þær eru mestu fjarverandi í viðræðum um frið og stríð, og eru til dæmis fáar sjáanlegar í nýju friðarráði Bandaríkjaforseta. Hvaða áhrif hafa óróatímarnir sem við lifum á konur? Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fyrrverandi utanríkisráðherra og ýmislegt fleira kom til okkar.

Minningardagurinn um helförina er í dag, 27. janúar, við töluðum um hann við Arthúr Björgvin Bollason. Við ræddum líka um hljóðfæri ársins í Þýskalandi. Já, Þjóðverjar velja jafnan hljóðfæri ársins. Og í ár er það harmónikkan.

Í síðasta hluta þáttarins röbbuðum við um handbolta. Það er leikur í dag og landsliðsmennirnir sjálfsagt tygja sig í morgunmat á hótelinu í Malmö. Það vekur athygli hve margir leikmenn liðsins koma frá Selfossi. Og við spyrjum: hvernig stendur á því? Hvernig er haldið á málum á Mjólkurbænum, eins og Selfoss er stundum kallaður? Þórir Haraldsson, formaður handknattleiksdeildar Ungmennafélagsins Selfoss, ræddi það við okkur.

Tónlist:

Elton John - Goodbye yellow brick road.

Sextett Ólafs Gauks - Ég vildi geta sungið.

Jón Páll Bjarnason, Ólafur Gaukur Þórhallsson - Tondeleyó.

Elton John - I guess that's why they call it the blues.

Frumflutt

27. jan. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,