• 00:28:35Húsnæðismarkaður - Jónas Atli Gunnarsson
  • 00:51:14Úkraína - Björn Malmquist
  • 01:16:01Filippseyjar - Sigyn Blöndal

Morgunvaktin

Skammtímaleiga, Úkraína og Filippseyjar

Fyrir helgi kynntu stjórnvöld í samráðsgátt frumvarp sem er ætlað takmarka umsvif í skammtímaleigu og koma fleiri íbúðum á almennan íbúðamarkað. Við ræddum um þessi áform og áhrif þeirra við Jónas Atla Gunnarsson, hagfræðing hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Á morgun hyggjast Bandaríkjaforseti og Rússlandsforseti ræða saman um möguleikann á vopnahléi í Úkraínu. Rússar setja ýmis skilyrði fyrir því. Björn Malmquist fréttamaður er í Kyiv í Úkraínu og ræddi við okkur.

Við heyrðum svo þriðja pistilinn frá Sigyn Blöndal, sem er búsett í Manila, höfuðborg Fillipseyja. Sigyn sagði meðal annars frá þjóðareinkennum Filippseyinga.

Tónlist:

Egill Ólafsson - Bara rólegan æsing.

Egill Ólafsson - Lífið er undur.

Moses Hightower - Alltígóðulagi.

Tómas R. Einarsson - Lag 1 [Án titils].

Smokey Mountain - Better world.

Frumflutt

17. mars 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Morgunvaktin

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,