Morgunvaktin

Almyrkvi, Úganda og vistvænt þorp í Fljótsdal

Það er óskandi vel viðri 12. ágúst á næsta ári. Þá verður almyrkvi á sólu sjáanlegur frá Íslandi. Landsmenn munu án efa fylgjast með og von er á fjölda fólks utan úr heimi. Við spjölluðum um almyrkvann á eftir; bæði fyrirbrigðið á himni og undirbúning á jörðu niðri. Með okkur voru Sævar Helgi Bragason vísindamiðlari og Gunnþórunn Bender, forseti bæjarstjórnar Vesturbyggðar.

Þórhildur Ólafsdóttir talaði við okkur frá Úganda og sagði okkur frá miklum hátíðahöldum þar í landi í gær, sem og ætlaðri hryðjuverkaárás sem herinn kom í veg fyrir. Hún sagði líka frá ótta Úgandabúa við vatn.

Á næstu vikum hefjast framkvæmdir í Fljótsdal, rétt utan við Skriðuklaustur, þar sem til stendur reisa nýja íbúabyggð. Skarphéðinn Smári Þórhallsson landfræðingur á Egilsstöðum hefur unnið uppbyggingunni undanfarin ár og sagði okkur frá.

Tónlist:

Hljómar - Ástarsæla.

Hljómsveit Magnúsar Ingimarssonar, Vilhjálmur Vilhjálmsson - Það er bara þú.

Una Torfadóttir - En.

Frumflutt

4. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Morgunvaktin

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,