Morgunvaktin

Svæðisskipulag Vestfjarða og samgöngur á Íslandi og í Bandaríkjunum

Á Vestfjörðum er, eins og við vitum, öflugt og gott samfélag sem enn skal eflt og bætt. Fyrir liggur svokölluð vinnslutillaga svæðisskipulagi Vestfjarða til 2050 þar sem mörkuð er stefna um uppbyggingu til framtíðar. Stefnt er fjölgun íbúa á svæðinu, þeir eru í dag rúmlega sjö þúsund en verða - gangi allt eftir 11 þúsund um miðja öld. Aðalsteinn Óskarsson sagði frá.

Sunnlendingar máttu áður fyrr fara á vöðum eða ferjum yfir fljótin sem renna um Suðurland. Sögur fólks sem fór gangandi eða ríðandi yfir beljandi fljót eru sagðar í máli og myndum í Húsinu á Eyrarbakka. Lýður Pálsson safnstjóri Byggðasafns Árnesinga var á línunni.

Þjóðvegur 66 er eins konar tákn um Bandaríkin og er löngu orðinn víðfrægur úr bókmenntum, kvikmyndum og tónlist. Saga hans er þó ekki ýkja löng, leiðin var tekin í notkun 1926 og aflögð fyrir fjörtíu árum. Vera Illugadóttir sagði sögu eins þekktasta þjóðvegar heims.

Tónlist:

Creedence Clearwater Revival - Have you ever seen the rain.

Rod Stewart - Maggie May.

Nat King Cole - Route 66.

Frumflutt

25. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Morgunvaktin

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,