Morgunvaktin

Heimsglugginn, hávaðamengun og fálkuorðuhafi

Bogi Ágústsson settist við Heimsgluggann. Nató-fundurinn í Haag var helsta mál á dagskrá, Bogi ræddi við Davíð Stefánsson, formann Varðbergs, samtaka um vestræna samvinnu og alþjóðamál. Bresk stjórnmál voru einnig rædd en sparnaðaráform ríkisstjórnarinnar í velferðarmálum mætir andstöðu í þingflokki Verkamannaflokksins.

Hávaðamengun hefur meiri áhrif á heilsuna heldur en þekktari skaðvaldar eins og óbeinar reykingar og snerting við blý. Yfir 110 milljónir manna í Evrópu þurfa þola mikla hávaðamengun og fjöldi fólks deyr eða missir heilsuna ár hvert vegna sjúkdóma sem tengja við hávaða. Við töluðum um hávaða, hljóðvist og hvað er hægt gera í málunum.

Meðal þeirra sem sæmdir voru fálkaorðunni á þjóðhátíðardaginn var Bjarki Sveinbjörnsson tónlistarfræðingur fyrir “framlag til varðveislu, rannsóknar og miðlunar íslenskrar tónlistarsögu.” Tónlistarsagan er merkileg og mikilvægt halda henni til haga; Bjarki kom til okkar.

Tónlist:

Ragnar Bjarnason, Hljómsveit Svavars Gests - Nótt í Moskvu.

KK band - Þjóðvegur 66.

Frumflutt

26. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Morgunvaktin

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,