Morgunvaktin

Hvenær á að auglýsa embætti, Berlínarspjall og KK með Sinfó

Það vakti athygli í síðustu viku þegar dómsmálaráðherra ákvað auglýsa laust til umsóknar embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum. Lögreglustjórinn brást við með segja upp. Líklega er ekki öllum ljóst hvenær auglýsa ber opinber embætti og störf og hvenær ekki og hvaða heimild ráðherra hefur til ráða því. Við skoðuðum lögin með Gísla Tryggvasyni lögmanni.

Arthur Björgvin Bollason fór yfir þýsk málefni. Stjórnmál, mannlíf og fótbolti voru á dagskrá þessu sinni.

Svo buðum við í kaffi góðkunningja hlustenda Rásar 1. KK er í hópi ástsælustu tónlistarmanna þjóðarinnar - við þekkjum lögin hans vel; flest eða mörg leikur hann á gítarinn sinn og syngur. En stendur mikið til; hann ætlar flytja þau í Eldborg á fimmtudag og föstudag með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Við röbbuðum við KK um lögin hans og lífið og tilveruna.

Tónlist:

Bræðrabandalagið - Sólarsamba.

Brimkló - Eitt lag enn.

Stína Ágústsdóttir - Kysstu mig morgni.

FC Bayern - Stern des Südens.

KK, Jón Jónsson - Sumarlandið.

Kristján Kristjánsson - Svona eru menn.

Kristján Kristjánsson - Á æðruleysinu.

Frumflutt

20. maí 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Morgunvaktin

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,