Morgunvaktin

Hækkandi sjávarstaða, Landsbankahúsið og sígild tónlist

Hækkandi yfirborð sjávar gæti valdið því margar milljónir manna þurfi flytjast frá sjónum inn til landa víða um heim. Hvernig er þessu háttað hér á landi? Við munum finna fyrir breytingum á sjávarborðinu hér á landi og Veðurstofan hefur kortlagt ýmislegt varðandi loftslagsbreytingar með nýjum loftslagsatlas. Anna Hulda Ólafsdóttir, skrifstofustjóri loftslagsþjónustu og aðlögunar, kom til okkar.

Landsbankahúsið við Austurstræti hefur verið sett á sölu. Hvaða starfsemi myndi sóma sér vel þar? Við fengum Svanhildi Konráðsdóttur, forstjóra Hörpu, og Runólf Ágústsson, áhugamann um mannlíf og skipulag, til velta því fyrir sér með okkur.

Magnús Lyngdal Magnússon var svo með okkur í síðasta hluta þáttarins og sagði frá Giuseppe Di Stefano, ítalska tenórsöngvaranum, sem sumir segja hafi haft fegurstu rödd allra söngvara.

Tónlist:

Paul McCartney - Maybe i'm amazed.

Bítlarnir - Across the universe.

Frumflutt

23. maí 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Morgunvaktin

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,