Morgunvaktin

Snjóflóðavarnir, aðventa og tónlist

Umhverfisráðherrann, Jóhann Páll Jóhannsson, ræddi við okkur um niðurstöður rannsóknarinnar á snjóflóðinu í Súðavík í janúar 1995. Skýrslan kom út á mánudag og í henni er dregin upp dökk mynd af skipulagi mála og samskiptum fólks. Við fórum yfir það og einnig ofanflóðavarnirnar í dag hvernig er málum háttað og hvað þarf gera?

Við hringdum til Vopnafjarðar og heyrðum af samkomum þar síðustu daga og vikur og jólaandanum í bænum. Viðmælandi var Fanney Björk Friðriksdóttir, bæjarfulltrúi og starfsmaður Brims. Svo var forvitnast um breskan rótgróin sið; syngja inn jólin. Það verður aldeilis gert í Hallgrímskirkju á sunnudaginn. Björn Steinar Sólbergsson, organisti í Hallgrímskirkju, sagði frá.

Magnús Lyngdal sagði frá og leyfði okkur heyra sígilda jólatónlist.

Tónlist:

Pálmi Gunnarsson - Yfir fannhvíta jörð.

Ragnar Bjarnason - Er líða fer jólum.

Nat King Cole - The Christmas Song.

Frumflutt

19. des. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,