Við fjölluðum um samband Íslands og Japan. Tilefnið er heimssýningin sem nú stendur í Osaka – Expo 2025. Hafa þjóðirnar áhuga hvor á annarri og eru samskiptin mikil? Kristín Ingvarsdóttir lektor við Háskóla Íslands spjallaði um það og fleira tengt.
Frá Japan fórum við til Úganda. Þórhildur Ólafsdóttir fjallaði svolítið um stjórnmál í landinu; það líður að forsetakosningum en forsetinn; Yoweri Musaveni hefur setið frá 1986 og er með þeim þaulsetnustu.
Í gær voru 50 ár síðan hljómplata Stuðmanna, Sumar á Sýrlandi, kom út. Við lékum nokkra smelli af þeirri góðu plötu, og heyrðum líka í nýjum borgarlistamanni Reykjavíkur, Ragnhildi Gísladóttur.
Tónlist:
Stuðmenn - Dagur að rísa.
Stefanía Svavarsdóttir og Pálmi J. Sigurhjartarson - Lately.
Stuðmenn - Út á stoppistöð.
Stuðmenn - Strax í dag.
Stuðmenn - Tætum og tryllum.
Stuðmenn - Í bláum skugga.
Ragnhildur Gísladóttir, Tómas R. Einarsson - Skítt með það, förum heim til mín.
Ragnhildur Gísladóttir - Fegurðardrottning.