Við fjölluðum um nýja rannsókn á útgjöldum fólks til heilbrigðisþjónustu. Rúnar Vilhjálmsson, prófessor við Háskóla Íslands, hefur fylgst með þróuninni. Það er munur á útgjöldum eftir samfélagshópum, jafnvel verulegur - það er að segja á útgjaldabyrðinni. Þeir sem lægstar hafa tekjurnar borga hvað hæsta hlutfallið af ráðstöfunartekjum sínum í heilbrigðiskerfið.
Björn Malmquist sagði okkur meðal annars frá kosningum sem fóru fram í Moldóvu í gær, meðal annars um Evrópusambandið, þar sem Rússar eru sakaðir um afskipti af kosningabaráttunni.
Sóley Kaldal hélt áfram að fjalla um þjóðaröryggi í víðum skilningi. Herkænska var viðfangsefni þáttarins í dag en í fræðunum er að finna ýmsar kenningar og leiðarstef um hana, meðal annars: Skákaðu óvininum án átaka.
Tónlist:
Fitzgerald, Ella, Count Basie and his Orchestra, Basie, Count - On the sunny side of the street.
Elly Vilhjálms - Ég vildi dansa í nótt.
Jóhann Sigurðarson - Hér ég arkaði oft = On the street where you live.
May, Joe - Wake me shake me.
Teitur Magnússon Tónlistarmaður, Hildur - Mónika.