• 00:26:19Helgi Gunnlaugsson og Þórunn Sveinbjarnardóttir
  • 00:49:50Björn Malmquist
  • 01:11:05Sigyn Blöndal

Morgunvaktin

Um íslenskt samfélag í tilefni lýðveldisdagsins á morgun

Í tilefni af þjóðhátíðardeginum á morgun var fjallað um íslenskt samfélag og þróun þess, stöðu og horfur. Fyrst ræddu viðmælendurnir, Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis og Helgi Gunnlaugsson, prófessor í félagsfræði, um árin undir Dönum og sjálfstæðisbaráttuna. Þau eru sammála um hér gott samfélag en auðvitað megi gera betur á ýmsum sviðum.

Björn Malmquist fjallað um stjórnmál í Evrópu, og heiminum öllum raunar. Fundur sjö helstu iðnríkja heims fer fram í Kanada og þar verða tollar og hernaður Rússa í Úkraínu einkum til umræðu.

Sigyn Blöndal flutti pistil frá Filippseyjum. Hún talaði m.a. um sjálfstæðisbaráttu Filippseyinga, þjóðfána þeirra og eldfjöll.

Tónlist:

Alparós - Vilhjálmur Vilhjálmsson og Elly Vilhjálms,

Three wooden crosses - Randy Travis,

I should have known better - Bítlarnir.

Frumflutt

16. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Morgunvaktin

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,