Ástandið fyrir botni Miðjarðarhafs, saga Möðruvalla og stórtæk áform á Vestfjörðum
Bogi Ágústsson settist við Heimsgluggann og með var honum Magnús Þorkell Bernharðsson, doktor og prófessor í sögu Mið-Austurlanda. Til umræðu var ástandið og átökin fyrir botni Miðjarðarhafs.
150 ár eru í dag síðan Friðriksgáfa, hús amtmannsins á Möðruvöllum í Hörgárdal, brann. Þetta var hvorki fyrsti né síðasti húsbruninn á prests- og menntasetrinu Möðruvöllum; brunasagan er raunar með miklum ólíkindum. Við hringdum til Möðruvalla og spjölluðum við Odd Bjarna Þorkelsson prest sem þar hefur þjónað í að verða tíu ár. Við töluðum um söguna en líka um lífið og tilveruna, og trúna.
Og úr Eyjafirðinum lá leiðin vestur á firði. Hjá Vestfjarðastofu er nú unnið markvisst að kynningu landshlutans til að laða að fjárfestingu sem nýtir gæði og náttúruauðlindir á ábyrgan hátt. Í þessu augnamiði hefur nýjum vef verið hleypt af stokkunum; slóðin er Inwest.is - vaffið er tvöfalt; þetta er leikur að orðum og stöfum. Sigríður Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri Vestfjarðastofu, sagði okkur frá þessu en gangi öll áform eftir þarf meðal annars að byggja um eittþúsund íbúðir á næstu árum.
Tónlist:
Haukur Morthens, Tríó Jörn Grauengård - Suður um höfin.
Haukur Heiðar Ingólfsson og félagar - You belong to me.
Ljótu hálfvitarnir - Paradísarmissir.
Frumflutt
21. mars 2024
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Morgunvaktin
Umsjónarmenn eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.