Morgunvaktin

Þorskur og ufsi, Suðurnesjabær og almyrkvi frá ýmsum hliðum

Almyrkvinn 1954 var rifjaður upp með Þórunni Huldu Sveinbjörnsdóttur í upphafi þáttar.

Guðbjörg Ásta Ólafsdóttir hjá Rannsóknasetri Háskóla Íslands á Vestfjörðum sagði okkur frá nýrri rannsókn á atferli þorska og ufsa á fyrsta aldursári þeirra.

Við heyrðum um undirbúning og tilstand í Suðurnesjabæ þegar við ræddum við nýjan bæjarstjóra þar, Alexöndru Jóhannesdóttur.

Við spjölluðum líka um eftirvæntinguna í Valencia á Spáni, þar sem almyrkvinn fer yfir í kvöld. Þar býr Erla Björk Valgerðardóttir Jónsdóttir. Svo töluðum við um Jónas Hallgrímsson og stjörnufræðiorðin sem hann smíðaði upp úr 1840. Almyrkvi var eitt af þeim. Anna Sigríður Þráinsdóttir málfarsráðunautur RÚV sagði frá.

Tónlist:

Katrín Halldóra Sigurðardóttir - Augun þín blá.

Haukur Morthens, Orion kvintettinn - Þér ég ann.

Vök - Cold.

Beoga - Phases.

Scott McLemore - Take a Stand.

Birt

12. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,