Morgunvaktin

Öldrunar- og velferðarþjónusta og Berlínarspjall

Við ræddum um öldrunarþjónustu framtíðarinnar þegar Þröstur Söring frá Sjómannadagsráði, sem rekur m.a. Hrafnistuheimilin, kom til okkar. Sjómannadagsráð hefur síðustu árin rætt um framtíðina við íbúa, starfsfólk, félög eldri borgara og sveitarfélög og velt því upp hvað þarf gera og hvað muni breytast.

Í lokahluta þáttarins brugðum við upp mynd af velferðarþjónustunni í Reykjavík. Í hverju felst hún, hverjir njóta þjónustu og hvernig þjónustu? Á dögunum voru línur skerptar allir starfsmenn velferðarsviðs og fleira fólk auki tók þátt í smíða aðgerðaáætlun til næstu fimm ára. Rannveig Einarsdóttir sviðsstjóri kom til okkar.

Á dagskrá Berlínarspjallsins í dag var meðal annars þýsk þjóðarsál og þýskur vinnumarkaður. Kanslarinn hefur látið því liggja Þjóðverjar séu latir; í það minnsta hvatt til þess fleiri vinni og skapi meiri verðmæti. Einnig var fjallað um Marlene Dietrich í spjallinu við Arthúr Björgvin Bollason.

Tónlist:

Marlene Dietrich - Ich bin von Kopf bis Fuss auf Liebe eingestellt.

Ásgeir Trausti Einarsson - Nýfallið regn.

Emilíana Torrini - I hope that I don't fall in love with you.

Frumflutt

3. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Morgunvaktin

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,