Morgunvaktin

Kosningar, Berlínarspjall og HM í fótbolta

Það styttist í sveitarstjórnakosningarnar. Víða eru þrír, fjórir, fimm listar í boði - sums staðar bara einn og sjálfkjörið, Flest framboð eru í Reykjavík, ellefu talsins. Svo er persónukjör í nokkrum sveitarfélögum.

Sigurður Árnason hefur mikinn áhuga á kosningunum og kosningum almennt. Hann heldur úti vef sem nefnist kosningasaga þar sem ógrynni upplýsinga og fróðleiks er finna. Hann kom til okkar.

Það styttist líka í Heimsmeistaramótið í fótbolta hefjist. Fyrsti leikur fer fram 11. júní. Í aðdraganda móts ætlar Illugi Jökulsson fjalla um þátttökuþjóðirnar og -liðin á Morgunvaktinni; hann beinir sjónum því skrítna og sérstaka, og segir sögur sem ekki rata í íþróttafréttirnar. Mestur tími fór í dag í tala um Curacao sem er á HM í fyrsta sinn.

Svo var Arthur Björgvin Bollason með okkur í Berlínarspjalli. Stjórnmál, fækkun barneigna og hvalurinn Timmy voru á dagskrá.

Tónlist:

Benni Hemm Hemm, Kórinn - Valið er ekkert.

Teitur Magnússon, Hildur - Mónika.

Birt

5. maí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,