Morgunvaktin

Staða barna, Evrópumál og Lína langsokkur

Heimsmyndin sem blasir við okkur ætti vera bönnuð börnum, en það er ekki hægt. Þetta segir framkvæmdastjóri UNICEF, barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna hér á landi. Við ræddum um stöðu barna á Gaza og víða um heim við Steinunni Jakobsdóttur, kynningarstjóra UNICEF hér á landi.

Björn Malmquist sagði okkur ýmsar fréttir frá Brussel, og ræddi við Ástu Valdimarsdóttur, ráðuneytisstjóra í heilbrigðisráðuneytinu, um viðræður um aðgang EES ríkjanna áætlun Evrópusambandsins í viðbrögðum við heilbrigðisvá eða neyðarástandi.

Í síðasta hluta þáttarins var fjallað um Línu langsokk, en 80 ára afmæli þessarar þekktu skáldsagnapersónu var fagnað í síðustu viku. Við heyrðum viðtal við Sigþrúði Gunnarsdóttur bókmenntafræðing frá því fyrir fimm árum um Línu, áhrif hennar og vinsældir, og um höfundinn Astrid Lindgren.

Tónlist:

Hjálmar - Morgunóður.

Mikael Máni Ásmundsson - What Once Was.

Jón Jónsson. - Tímavél.

Hanna Valdís Guðmundsdóttir - Lína Langsokkur.

Miles Davis og fleiri - Someday my prince will come.

Frumflutt

26. maí 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Morgunvaktin

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,