Morgunvaktin

Framtíð lýðræðis og staða kvenna í nútíð og fortíð

Bogi Ágústsson settist við Heimsgluggann. Hann ræddi stuttlega um stöðu mála í Íran, og svo var Ólafur Þ. Harðarson prófessor í stjórnmálafræði gestur hans. Þeir ræddu saman um framtíð lýðræðisins á þessum víðsjárverðu tímum.

Fyrir 25 árum samþykkti Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna beita sér fyrir aukinni þátttöku kvenna til koma í veg fyrir vopnuð átök, í friðarferli og friðaruppbyggingu. Hver er staða kvenna í stórveldapólitík heimsins, og koma þær mikið málum í umræðum um frið? Brynja Huld Óskarsdóttir öryggis- og varnarmálafræðingur stendur stofnun tengslanets kvenna í alþjóðaöryggismálum hér á landi, og kom á Morgunvaktina.

Bókin Konur sem kjósa kom út fyrir fimm árum síðan og fjallar um fyrstu öld kosningaréttar kvenna en í dag er kvenréttindadagurinn og 110 ár frá því konur fengu kosningarétt. Við rifjuðum upp sögur af konum úr viðtali við þær Ragnheiði Kristjánsdóttur og Erlu Huldu Halldórsdóttur, sagnfræðiprófessora við Háskóla Íslands.

Tónlist:

Bríet - Esjan.

Laufey - Silver Lining.

Marína Ósk Þórólfsdóttir, Sunna Gunnlaugsdóttir, Scott Ashley McLemore, Nicolas Louis Christian Moreaux - Ástakvæði.

Frumflutt

19. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Morgunvaktin

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,