Morgunvaktin

Bækur, börn og sígild tónlist

Jólabókaflóðið er hafið; nýjar bækur fylla borðin í búðunum; höfundar kynna verk sín og útgefendur vona það besta. Það er vertíð og mikið í húfi. Pétur Már Ólafsson í Bjarti-Veröld hefur verið lengi í útgáfubransanum, hann kom í kaffi og spjallaði um bækur og útgáfu, lesendur og taugatrekkta höfunda.

Um þessar mundir er verið stofna farsældarráð í öllum landshlutum, en sveitarfélög koma þar saman og vinna saman í þágu farsældar barna. Á Vestfjörðum verður þetta skref formlega stigið í dag, farsældarþing verður í dag á Ísafirði. Erna Lea Bergsteinsdóttir, verkefnastjóri farsældarráðs Vestfjarða, sagði frá.

Svo var það klassíkin. Magnús Lyngdal hélt áfram leiðsögn sinni um rangala sígildrar tónlistar.

Tónlist:

The Fred Hersch Trio + 2 - And I love her.

Sveinbjörn I. Baldvinsson - Lagið um það sem er bannað.

Frumflutt

7. nóv. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Morgunvaktin

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,