Morgunvaktin

15 prósent barna upplifa sig utangarðs í skóla

Við héldum áfram fjalla um samfélagið og líðan fólks. Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sviðsstjóri lýðheilsu hjá Landlæknisembættinu og doktor í lýðheilsu, ræddi um félagsleg tengsl og einmanaleika, en skortur á félagslegum tengslum er stór áhættuþáttur bæði í andlegri og líka líkamlegri heilsu. Hún sagði okkur líka frá nýjum lýðheilsuvísum, þar sem fram kemur 15 prósent barna í 8.-10. bekk upplifa sig utangarðs í skóla.

Björn Ingimarsson sveitarstjóri í Múlaþingi kom líka til okkar. Við töluðum við hann um samgöngur, uppbyggingu og fleira. Hann hefur ákveðið láta af störfum um áramótin, og ræddi þá ákvörðun líka.

Magnús Lyngdal var með okkur og hélt áfram fræða okkur um sígilda tónlist og leyndardóma hennar. Í dag fjallaði hann um takt og leyfði okkur heyra brot úr nokkrum tónverkum, leikin bæði hægt og hratt.

Í upphafi þáttar hringdum við í Reykholt og spjölluðum svolítið um sjálfan Snorra Sturluson við Berg Þorgeirsson, forstöðumann Snorrastofu.

Tónlist:

Conjunto Cachicadan - Mi china Lola.

Jorge Barssy Y Su Conjunto - El Panado.

Frumflutt

20. sept. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Morgunvaktin

Morgunvaktin

Umsjónarmenn eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.

Þættir

,