Stjórnmál voru til umfjöllunar í Heimsglugganum í dag og þá ekki síst barátta lýðræðisafla og popúlista um völd. Bogi Ágústsson ræddi stöðu mála í Argentíu, Venesúela, Bandaríkjunum, Póllandi og Slóvakíu svo einhver ríki séu nefnd. Giorgia Meloni, forsætisráðherra Ítalíu, og Rishi Sunak, forsætisráðherra Bretlands, hafa bæði verið við völd í um ár og það var til umræðu líka, sem og Nató-aðild Svía.
Valur Gunnarsson rithöfundur var líka gestur okkar. Hann hefur nokkrum sinnum komið til okkar og talað um innrás Rússa í Úkraínu og raunar eitt og annað er varðar fyrrum Sovétlýðveldi. Hann er vel heima í sögu og stöðu í austrinu og hefur skrifað bækur um þau mál. Og nú hefur hann sent frá sér bókina Stríðsbjarmar, Úkraína og nágrenni á átakatímum.
Við forvitnuðumst líka um Íslenska fæðuklasann. Hann er hugarfóstur Ingibjargar Davíðsdóttur sem fékk frí frá störfum sínum í utanríkisþjónustunni til að koma honum á fót. Ingibjörg mun tala á fundi ungra bænda í dag; baráttufundi fyrir lífi bænda og sveitanna, eins og hann er kynntur. Kannski aukið samstarf allra sem að matvælaframleiðslu og -sölu koma geti hjálpað bændum?
Tónlist:
Dorsey, Jimmy and his Orchestra, Armstrong, Louis - Hurdy-gurdy man.
King, Carole - Gotta get through another day.
Mugison - Kossaflóð.