Bjarni Benediktsson tekur við SA, kosningar í Mjanmar
Samtök atvinnulífsins tilkynntu í morgun að þau hefðu ráðið Bjarna Benediktsson sem nýjan framkvæmdastjóra. Bjarna þarf ekki að kynna til leiks; hann sat á Alþingi í 22 ár og var einn aðsópsmesti en um leið umdeildasti stjórnmálaforingi landsins. Sem fjármálaráðherra í áratug var hann áhrifamikill í íslensku efnahagslífi og hafði sterkar skoðanir á mikilvægi aðila vinnumarkaðarins fyrir stöðugleika. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við Bjarna - og Hölku Gunnarsdóttur, formann VR, og Sólveigu Önnu Jónsdóttur, formann Eflingar.
Þriggja umferða kosningum lauk í Mjanmar í gær, sunnudag. Þetta voru fyrstu kosningarnar þar frá því að herinn steypti lýðræðislega kjörinni stjórn af stóli, enn einu sinni, eftir tíu ára lýðræðistilraun. Herforingjastjórnin segir kosningarnar leið til aukins lýðræðis og sátta, en gagnrýnendur segja þær skrípaleik, til þess gerðan að treysta enn völd hersins í landinu. Ævar Örn Jósepsson segir frá.
Umsjón: Ævar Örn Jósepsson
Tæknimaður: Mark Eldred
Frumflutt
26. jan. 2026
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Spegillinn
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.