• 00:00:00Sveitarfélög og áhrif loftslagsbreytinga
  • 00:06:41Kúbustjórn í þröngri stöðu
  • 00:15:06Rauðu húfurnar

Spegillinn

Loftslagsmál og sveitarfélög, Kúbustjórn í kröppum sjó, prjónahúfur og pólitík

Aðgerð C10 í byggðaáætlun fjallar um aðlögun sveitarfélaga áhrifum loftslagsbreytinga. Verkefni sem Byggðastofnun leiðir í samstarfi við Veðurstofu Íslands, Skipulagsstofnun og umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið. Eins og gefur skilja er þar verið undirbúa sveitarfélög í takast á við nýjan veruleika sem breytt veðurfar hefur í för með sér. Ágúst Ólafsson ræðir við Ragnhildi Friðriksdóttur og Ólaf Þór Ólafsson.

Bandaríkjamenn hafa stöðvað nær allan olíuinnflutning til Kúbu, með þeim afleiðingum allsherjar rafmagnsleysi blasir við og fjölmörg flugfélög hafa ýmist hætt flugi til og frá landinu eða dregið verulega úr því. Markmið Bandaríkjastjórnar er ekkert leyndarmál: koma kúbversku stjórninni frá völdum. Ævar Örn Jósepsson ræðir við Tómas R. Einarsson um ástandið á Kúbu.

Rauðar prjónahúfur hafa löngum verið vinsælar en þær geta líka falið í sér dýpri merkingu og hafa jafnvel verið bannaðar. Á vinsælli síðu handavinnufólks, er einföld rauð prjónahúfa með skotti - og slagorði gegn bandarísku innflytjendalögreglunni, ICE, vinsælasta uppskriftin. Anna Kristín Jónsdóttir segir frá þessu.

Umsjón: Ævar Örn Jósepsson

Tæknimaður: Kári Guðmundsson

Birt

12. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,