Spegillinn

Reiknar með miklu eignatjóni eftir óveðrið

Runólfur Þórhallsson, sviðsstjóri almannavarnarsviðs ríkislögreglustjóra, reiknar með eignatjónið verði meira en menn geri sér grein fyrir eftir óveðrið sem gekk yfir landið í gær og í dag. Hann telur viðvaranakerfi Veðurstofu Íslands og Almannavarna hafa gert sitt gagn.

Seðlabankinn lækkaði í gær stýrivexti um 0,5 prósentustig og eru meginvextir hans 8,0%. Í yfirlýsingu peningastefnunefndar kemur fram allir nefndarmenn studdu ákvörðun um lækkun. Verðbólgan var 4,6% í síðustu mælingu og útlit fyrir hún haldi áfram hjaðna. Það hefur dregið úr umsvifum á húsnæðismarkaði og hægt á verðhækkunum þar en enn er verðbólgu-þrýstingur til staðar. Þetta var þriðja stýrivaxtalækkunin í röð frá því í október, þeir hafa lækkað um eitt prósent frá því. Katrín Ólafsdóttir dósent við Háskólann í Reykjavík segir lækkunina og taktinn eins og flestir bjuggust við.

Talsvert óöryggi hefur gripið um sig meðal bæjarbúa í dönskum smábæ, sem ófáir hafa séð til úlfa nálægt bænum undanförnu, þótt enn hafi þeir aðeins einu sinni sést í bænum sjálfum. Því var blásið til íbúafundar í íþróttahúsi bæjarins í vikunni, þar sem ráðherra og sérfræðingar ávörpuðu heimafólk og svöruðu spurningum. Öll 400 sætin í íþróttahúsinu voru setin, tugir til viðbótar stóðu upp á endann, og yfir 1.100 manns fylgdust með beinu streymi frá fundinum. auki stóðu bændur úr nærsveitum mótmælastöðu við íþróttahúsið og kröfðust aðgerða til varnar þessu ferfætta innrásarliði.

Frumflutt

6. feb. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,