Viðræður Landsnets við landeigendur, aukin kynferðisbrot gegn börnum og aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi.
Ragna Árnadóttir, forstjóri Landsnets, segir að mörgu að hyggja eigi að breyta vinnubrögðum við undirbúning nýrra hápsennulína og samningum við landeigendur. Samningaleiðin sé í flestöllum tilfellum betri en eignarnám. Landsnet stendur víða frammi fyrir andstöðu við lagningu á nýjum háspennulínum, nú síðast í Borgarfirði og Húnavatnssýslum.
Í nýjum tölum frá lögreglunni kemur fram að í fyrra var tilkynnt um 133 kynferðisbrot gegn börnum og að þeim hafi fjölgað töluvert milli ára. Tilkynningar um barnaníð voru rúmlega helmingi fleiri en síðustu ár þar á undan. Barnahús sinnir börnum sem grunur leikur á að hafi sætt ofbeldi eða kynferðislegri áreitni og Paola Cardenas, sálfræðingur og teymisstjóri í Barnahúsi, segir að þar verði fjölgunar mála vart.
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, kynnti í morgun fjölmargar aðgerðir til að sporna gegn skipulagðri brotastarfsemi. Meðal annars á að uppfæra á hegningarlögin og færa lögreglu rýmri heimildir. Þá á að auka eftirlit með höfnum sem hafa verið notaðar í fíkniefnasmygl, en ekki er bolmagn til að fylgjast jafn vel með því sem flutt er til landsins í gámum og yfirvöld vildu.
Frumflutt
2. feb. 2026
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Spegillinn
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.