Spegillinn

Ópíóíðafíkn, útrýming riðu, forseti ASÍ, kosningar í Tyrklandi

Spegillinn 28. Apríl 2023

Umsjónarmaður: Ásgeir Tómasson

Tæknimaður Magnús Þorsteinn Magnússon

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra boðar 170 milljónum króna verði veitt í aðgerðir til sporna við skaða af völdum ópíóíðafíknar.

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur samþykkt tillögu yfirdýralæknis um breytta aðferð við útrýma riðu.

Ríkisstjórnin hefur ákveðið grípa til bráðaaðgerða til tryggja ofanflóðavarnir á Patreksfirði. Guðlaugur Þ. Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra segir uppbyggingu hefðbundinna ofanflóðavarna um það bil hálfnaða. Markús Þórhallsson talaði við hann.

Ekki er alveg skýrt hvað þurfi til, svo hægt skikka íbúðareigendur í fjöleignarhúsum til þess selja eign sína. Dómur sem nýlega var kveðinn upp sýnir húsfélag getur rekið eiganda úr íbúð sinni. Róbert Jóhannsson talaði við Sigurð Orra Hafþórsson, lögmann Húseigendafélagsins.

Nokkur óvissa ríkir um framtíð Kvennaathvarfsins á Akureyri. Dregið hefur verið úr þjónustu þar, sem Linda Dröfn Gunnarsdóttir, framkvæmdastýra segir sorglegt. Amanda Guðrún Bjarnadóttir ræddi við hana.

Bann við afganskar konur starfi fyrir Sameinuðu þjóðirnar er félagslegt innanríkismál. Þetta er svar utanríkisráðuneytis Afganistan í dag við kröfu öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um talíbanastjórnin láti af banninu. Markús Þórhallsson sagði frá.

Hollenskum karlmanni á fimmtugsaldri var samkvæmt dómsúrskurði í morgun bannað gefa meira sæði til sæðisbanka. Sæði mannsins er talið hafa verið notað til þess búa til hátt í 600 börn með glasafrjóvgunum.

Finnbjörn Hermannson svar sjálfkjörinn í embætti forseta ASÍ í dag. Hann segir í viðtali viðp Hauk Holm segir félagsmenn ætli snúa bökum saman í komandi kjaraviðræðum.

Tvísýnt er um Erdogan Tyrklandsforseti verði endurkjörinn í forsetakosningum eftir 16 daga. Ásgeir Tómasson sagði frá.

Samu Paukkunen, aðstoðarforstöðumaður finnsku alþjóðamálastofnunarinnar, segir umskiptin í afstöðu Finna til aðildar NATO hafa verið hvort tveggja skjót og afgerandi. Ævar Örn Jósepsson ræddi við hann.

Frumflutt

28. apríl 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

,