• 00:00:30Vindorka
  • 00:10:35Sprenging Nord Stream-leiðslunnar
  • 00:14:58Vandræði norsku konungsfjölskyldunnar

Spegillinn

Vindorka, skemmdarverk á gasleiðslu og norska konungsfjölskyldan

Frumvarp umhverfis- og orkumálaráðherra um breytingar á rammaáætlun vegna vindorkuvera náði ekki fram ganga í vor, og vakti raunar nokkrar deilur og gagnrýni, innan þings sem utan. Ráðherra vísar allri gagnrýni um samráðsleysi á bug og segir hrökkva eða stökkva - ef fólk vill græna orku, þá þurfi virkja vindinn. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við Guðlaug Þór Þórðarson.

Þýsk yfirvöld upplýsa hópur Úkraínumanna grunaður um hafa unnið skemmdarverk á Nord Stream-gasleiðslunum tveimur haustið 2022, sjö mánuðum eftir Rússar réðust inn í Úkraínu. Fjögur göt voru gerð á neðansjávarleiðslur Nord Stream í Eystrasaltinu, tvö í danskri lögsögu og tvö í sænskri, en leiðslurnar liggja frá Rússlandi til Þýskalands. Grunurinn beinist meðal annars háttsettum yfirmönnum í Úkraínuher, og fullyrt Úkraínuforseti hafi vitað af áformunum og reynt stöðva þau - en ekki haft erindi sem erfiði. Ævar Örn Jósepsson segir frá.

Mjög er vegið norsku konungsfjölskyldunni vegna meintra ofbeldisverka og eiturlyfjaneyslu stjúpsonar verðandi konungs. Virtir ritstjórar efast um Haraldur konungur fimmti, kominn hátt á níræðisaldur, hafi lengur stjórn á sínu fólki og segja hann eiga víkja. Ástandið hjá kóngafólkinu yfirskyggir allar átakafréttir í norskum fjölmiðlum. Gísli Kristjánsson segir frá.

Umsjón: Ævar Örn Jósepsson

Tæknimaður: Jón Þór Helgason.

Frumflutt

15. ágúst 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir