Spegillinn

Snemmsumarshvellur og mótmæli gegn útlendingum

Norðanóveður er í spánni. Óvissustigi hefur verið lýst yfir á Austurlandi, Austfjörðum og Suðuarusturlandi og gildir langt fram á morgundaginn. Katrín Agla Tómasdóttir, veðurfræðingur tekur undir þetta ekki einsdæmi snemmsumars en mjög óvenjulegt á þessum tíma.

Hret á þessum árstíma getur bitnað illa á bændum, þeir þurfa vera fljótir stökkva til og koma kindum og nýfæddum lömbum í skjól og huga gróðri sem kominn er mun lengra kominn en oftast áður. Sigurgeir Hreinsson, framkvæmdastjóri Búnaðarsambands Eyjafjarðar, hvetur bændur til vera á tánum en vonar hretið núna verði ekki eins slæmt og fyrir ári.

Á laugardag var haldinn fundur á Austurvelli á vegum hóps sem nefnist Ísland þvert á flokka á Facebook. Fundarmenn kröfðust aðgerða í útlendingamálum - og fundurinn hefur verið kallaður rasistasamkoma af sumum á samfélagsmiðlum. Nokkur af þeim atriðum sem fólkið á Austurvelli krafðist yrði breytt eru þegar til skoðunar hjá stjórnvöldum. Einar Jóhannes Guðnason, varaformaður Freyfaxa sem er ungliðahreyfing Miðflokksins og var á fundinum er ekki sáttur við vera stimplaður rasisti. Ása Berglind Hjálmarsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, beinir gagnrýni sinni þeim sem töluðu á fundinum.

Frumflutt

2. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,