• 00:00:30Leigubílafrumvarp
  • 00:06:34Ákall til ríkja að fylla tómarúm Bandaríkjanna
  • 00:13:42Stafafuran ágeng tegund

Spegillinn

Leigubílafrumvarp, alþjóðastjórnmál og ágenga trjátegundin stafafura

Innviðaráðherra mælti á Alþingi í dag fyrir frumvarpi um breytingar á lögum um leigubílaakstur. Stöðvarskylda verður innleidd á og bílstjórum gert skrá allar ferðir sínar rafrænt. Ráðherra segir traust almennings til leigubílstjóra hafi algjörlega hrunið og við því verði bregðast. Nauðsynlegt tryggja betur öryggi farþega.

Bandaríkjaforseti heldur áfram þeirri stefnu draga Bandaríkin út úr alþjóðastofnunum, samningum og sáttmálum. Hvað tekur við? Við ræddum um stöðuna í heimsmálunum við prófessor í stjórnmálafræði.

Stafafura er ágeng tegund sem getur haft alvarleg áhrif á vistkerfi landsins ef marka niðurstöður úr nýlegri rannsókn á áhrifum tegundarinnar. Útbreiðslan tífaldaðist á rúmum áratug á því landsvæði sem rannsakað var. Sviðsstjóri hjá Náttúrufræðistofnun telur frekari ræktun stafafuru krefjist aukinnar þekkingar og tafalausra viðbragða við útbreiðslu.

Frumflutt

20. maí 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,