Spegillinn

Leiðtogafundur Nato og afdrifarík hárspöng frá TEMU

Leiðtogar ríkja í Atlantshafsbandalaginu koma saman á fundi í Haag í Hollandi í næstu viku. Við blasa erfið verkefni; stríðið í Úkraínu hefur geisað í þrjú ár og ógnin frá Rússlandi er mikil. Innan bandalagsins hefur verið tekist á um framlög ríkja til varnarmála og Donald Trump forseti Bandaríkjanna verið óspar á gagnrýni á önnur aðildarríki sem verði leggja meira til öryggis- og varnarmála.

Sóknaráætlun landshluta er eitthvað sem við heyrum oft í fréttum en færri vita sennilega hvað er. Sama er með orðið uppbyggingarsjóður sem styður við verkefni sem falla sóknaráætlun. Albertína Friðbjörg Elíasdóttir er framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra - SSNE. Hún er ein af átta framkvæmdastjórum landshlutasamtaka sveitarfélaga sem sýsla reglulega með málefni í sóknaráætlun.

Móðir fimm ára stúlku sem steyptist út í útbrotum á andliti og endaði upp á barnaspítala eftir hafa gengið með spöng frá Temu í nokkrar klukkustundir segir mikilvægt fólk geri sér grein fyrir hættunni sem geti fylgt vörunum. Vottanir séu til af ástæðu og afleiðingar geti verið alvarlegar. Umhverfisstofnun hefur marg oft varað við vörum frá kínverskum netsölutorgum en það virðist hafa lítl áhrif á Íslenska neytendur. Dæmi eru um vörunar innihaldi hundrað sinn­um hærra magn af eiturefnum en lög­legt er.

Frumflutt

20. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,