Spegillinn

Utanríkisráðherra um Gaza, stýrivaxtalækkun og menning í ferðaþjónustu

Staðan á Gaza og aðgerðir Evrópusambandsins var umræðuefni á ráðherrafundi EES ríkjanna í Brussel í dag, þar sem Kaja Kallas utanríkismálastjóri ESB var meðal þátttakenda. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir tók þátt í þessum fundi; hún segir það ánægjulegt aðildarríki ESB séu samstöðu um harðari aðgerðir gagnvart Ísrael. Viljayfirlýsing um nánara samstarf á sviði utanríkis og öryggismála var einnig staðfest á þessum fundi. Björn Malmquist fréttamaður ræddi við Þorgerði Katrínu í Brussel í dag.

Peningastefnunefnd Seðlabankans lækkaði stýrivexti í dag um 0,25 prósentustig, úr 7,75 prósent í 7,5. Þórarinn G. Pétursson varaseðlabankastjóri segir verðbólgan þurfi hjaðna í sumar til hægt verði halda vaxtalækkunarferlinu áfram. Horfur í efnahagsmálum séu góðar en óvissa á alþjóðamörkuðum út af tollastríði gæti sett strik í reikninginn.

Menningarferðaþjónusta er í fyrsta sinn formlega skilgreind sem hluti af ferðamálastefnu stjórnvalda enda er menning talin afar mikilvægur þáttur í ferðaþjónustu og ferðamenn sem hingað koma njóta íslenskrar menningar með ýmsum hætti um allt land.

Frumflutt

21. maí 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,