Julian Assange var leystur úr Belmarsh öryggisfangelsinu í Lundúnum í morgun, þar sem honum hafði verið haldið meira og minna í einangrun í rúm fimm ár án dóms og eiginlegrar málsmeðferðar, með framsal til Bandaríkjanna yfirvofandi. Sigríður Dögg Auðundsdóttir formaður blaðamannafélagsins fagnar frelsun Assange, en segir málalyktir þó ekki geta talist sigur fjölmiðla- og tjáningarfrelsis.
Spegillinn óskaði eftir gögnum um ákvörðun matvælaráðherra að leyfa hvalveiðar á þessu ári - þau varpa ljósi á mikla óánægju forstjóra Hvals og efasemdir innan matvælaráðuneytisins um útreikninga Hafrannsóknastofnunar.
Frumflutt
25. júní 2024
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Spegillinn
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.