Spegillinn

Icelandair vill kaupa Fly Play Europe, sameining Árneshrepps og Kaldrananeshrepps og manntal á Indlandi.

Icelandair upplýsti í morgun félagið ætti í viðræðum um kaup á 49 prósenta hlut í Fly Play Europe þar sem helstu verðmætin eru flugrekstrarleyfi á Möltu. Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segir kaupin geta falið í sér tækifæri til aukins sveigjanleika í starfseminni og til einfalda flota Icelandair hér á landi.

Um helgina lágu fyrir úrslit í kosningum um sameiningu Árneshrepps og Kaldrananeshrepps og var sameiningin samþykkt í báðum sveitarfélögum. Íbúakosning um sameininguna stóð frá 14. til 28. mars. Þetta eru fámenn sveitarfélög, tvö af fimm fámennustu sveitarfélögum landsins, en íbúar sameinaðs sveitarfélags verða 177 miðað við íbúafjölda 1. janúar.

Í dag hófst austur á Indlandi viðamesta - og metnaðarfyllsta - manntal sem gert hefur verið í mannkynssögunni. Þar eiga yfir þrjár milljónir karla og kvenna, telja um 1,4 milljarða landa sinna og afla um leið alls kyns upplýsinga um aðstæður þeirra, trú, efnahag, stétt og fleira. Áætlað er þetta risaverkefni taki eitt ár og ljúki 31. mars á næsta ári.

Birt

1. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,