Júdókempa, garðyrkjufræðingur á sjötugsaldri og þrítugur Íslendingur sem nýverið var dæmdur fyrir tilraun til manndráps eru meðal sex sakborninga sem ákærðir eru fyrir að halda manni föngnum á heimili sínu í Reykholti í Bláskógabyggð og ræna af honum ævisparnaðinum. Martraðir eftir árásina halda vöku fyrir manninum. Freyr Gígja Gunnarsson segir frá.
„Ég held að flestum Bandaríkjaforsetum frá írönsku byltingunni hafi langað til að ráðast inn í Íran en enginn verið nógu vitlaus til að gera það þangað til núna," segir Guttormur Þorsteinsson formaður Samtaka hernaðarandstæðinga meðal annars, aðspurður um líklegar ástæður ólöglegra árása Bandaríkjanna og Ísraels á Íran. Árásir þeirra síðastnefndu á bandarískar herstöðvar í nágrannaríkjum þeirra ættu að vekja Íslendinga til umhugsunar. Ævar Örn Jósepsson ræðir við Guttorm.
Stríðsrekstur hefur oft verið réttlættur með vísan til trúar og vilja guðs og virðist slík réttlæting lifa góðu lífi vestanhafs, ef marka má flóð tilkynninga undanfarna daga um málflutning bandarískra herforingja sem vísa til dómsdags og endaloka heims til að brýna hermenn í stríði við Íran. Anna Kristín Jónsdóttir fjallar um þetta.
Umsjón: Ævar Örn Jósepsson
Tæknimaður: Mark Eldred
Birt
5. mars 2026
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Spegillinn
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.