Spegillinn

Rannsókn lögreglu teygir sig yfir landamæri, flokkaflakk og hundruð þúsunda gesta við Dettifoss

Rannsókn lögreglu á fjölskylduharmleik á fimm stjörnu lúxushóteli við Austurbakka í Reykjavík teygir sig bæði til Frakklands og Írlands. Henni miðar vel en er á byrjunarstigi. Ekki er útilokað frönsk yfirvöld sendi hingað lögreglumenn til fylgjast með rannsókn málsins.

Flokkshollusta virðist ekki lengur hafa áhrif á val kjósenda eins og hún gerði, um helmingur kjósenda kaus ekki sama flokk í fyrra og hann gerði í alþingiskosningum 2021.

Dettifoss komst nýlega í fréttirnar þegar skriða féll þar og frekara jarðrask uppgötvaðist í kjölfarið. Til gæta öryggis ferðamanna var leiðum við fossinn lokað tímabundið. Þess utan eru þarna næg verkefni en þrjú til fjögur þúsund gestir skoða Dettifoss á dag.

Frumflutt

16. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,