Spegillinn

Bætur vegna símhlustunar og áhrif veiðigjalds á litla báta

Íslenska ríkið greiddi tæpar 10 milljónir króna í skaðabætur vegna símhlustana sérstaks saksóknara í hrunmálum og fjórar milljónir í lögmannskostnað. Þetta kemur fram í tölum frá ríkislögmanni. Tuttugu og átta kröfðust bóta. Í tuttugu og fjórum tilvikum var samið um bætur. Þrjú mál fóru fyrir dóm, þar sem tveimur lauk með dómsátt og einu með dómi. Einni kröfu var hafnað.

Fyrirhuguð hækkun veiðigjalds verður hlutfallslega mest hjá smæstu fiskiskipunum, eða þeim sem veiða innan við 350 tonn á ári. Þetta sýna útreikningar Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi. Í flestum tilfellum eru þetta viðkvæmar rekstrareiningar sem oft eru undirstaða atvinnu í litlum sjávarbyggðum.

Og það var tekist á um það hvort það væri stjórnarandstöðunni eða ríkisstjórninni sjálfri kenna hvort tvö frumvörp dómsmálaráðherra um landamæri og framsal sakamanna væru rædd á þingi eða ekki.

Frumflutt

26. maí 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,