• 00:00:18Dómsmálaráðherra um útlendingamál
  • 00:08:54Skorradalsvatn og Andakílsárvirkjun
  • 00:15:02COP31 - hver og hver og vill og verður?

Spegillinn

Ráðherra um brottvísunarbúðir, Andakílsárvirkjun og loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna

Það væri óheiðarlegt kalla fyrirhugaðar brottvísunarbúðir eitthvað annað en þvingunarráðstöfun, segir dómsmálaráðherra. Hún telur sig ekki þurfa hlusta á yfirhalningu frá fínum mönnum í Háskóla Íslands um hlutirnir séu ekki eins og þeir séu varðandi námsmannaleyfi erlendra nemenda - hún hafi gögn og yfirlýsingar sem sýni bregðast þurfi við.

Bændur, veiðimenn og sumarhúsaeigendur í Borgarfirði eru ósáttir við hvernig Andakílsárvirkjun stjórnar vatnshæð í Skorradalsvatni og rennsli Andakílsár. Þeir kvarta undan blautum túnum, landrofi, öryggi veiðimanna, áhrifum á mannvirki og hvarfi gönguleiða meðfram vatninu.

Í dag var tilkynnt loftlagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna COP 32, sem haldin verður eftir tvö ár, verði í Eþiópíu - en hvar COP 31 verður haldin á næsta ári liggur ekki fyrir enn. Tvö ríki, Ástralía og Tyrkland, bítast nefnilega um hnossið - og ef hvorugt þeirra gefur eftir mun það þriðja neyðast til gera það. Þetta ríki er Þýskaland - en Þjóðverjar vilja ekki halda ráðstefnuna og gera því allt hvað þeir geta til leysa þetta óvenjulega vandamál, sem rekja til regluverksins um val á gestgjöfum.

Frumflutt

11. nóv. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,