• 00:00:00Kynning
  • 00:00:36Verðlagsmál
  • 00:07:12Leiðtogafundur í London
  • 00:12:37Sólarorkubylting hefst á Íslandi
  • 00:19:33Kveðja

Spegillinn

Matvælaverð hækkar í hverjum mánuði, leiðtogafundur í London og sólarorkubylting

Verð á matvælum hefur hækkað í hverjum einasta mánuði frá áramótum samkvæmt verðlagseftirlit ASÍ. Nautakjöt hefur hækkað mest og í einstaka tilfellum um allt 20 prósent á ársgrundvelli.

Það eru verða níu ár síðan meirihluti breskra kjósenda samþykkti útgöngu úr Evrópusambandinu - og rúm fimm ár síðan útgangan tók formlega gildi - en á leiðtogafundi sem haldinn var í Lundúnum í morgun var hins vegar samþykkt taka ákveðin skref til baka - til hagsbóta fyrir breskan almenning segir Keir Starmer forsætisráðherra Bretlands. Innan stjórnarandstöðunnar er hins vegar talað um uppgjöf fyrir Evrópusambandinu.

Sólarorkuverum fjölgar hratt á Íslandi og segja sólarorkubylting hefjast. Orkuverð hækkar og búnaður hefur batnað. Plötur sem fanga orkuna þurfa ekki glampandi sól og rafhlöður geta geymt orkuna til næturinnar. Fyrirtækið Alor setur þessa dagana upp sólarorkuver á nokkrum stöðum á landinu.

Frumflutt

19. maí 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,