• 00:00:14Frábrugðin staða og fyrir 30 árum
  • 00:08:17Samið um makríl - hagsmunum fórnað segir SFS
  • 00:16:10Upphitun fyrir leiðtogafund ESB

Spegillinn

Búið að vinna hættumat fyrir alla íbúabyggð, makríll og leiðtogafundur ESB

Efnismikil skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis um snjóflóðið í Súðavík fyrir þrjátíu árum leit dagsins ljós í gær; hún varpar meðal annars ljósi á hvernig sveitarfélög á þessum tíma voru mörg hver vanbúin til verjast stórhættulegum ofanflóðum.

Það var til mynda vitað á tíu stöðum, þar sem snjóflóðahætta var viðvarandi, var aðeins á einum stað þar sem eftirlit var fullnægjandi; Ísafirði. Hættumöt sem voru gerð gátu oft og tíðum orðið pólitísku þrætuepli og fámennustu sveitarfélögin höfðu ekki fjárhagslegt bolmagn til reisa varnarmannvirki. En hvernig er staðan í dag?

Sögulegt segir á vef utanríkisráðuneytisins um samkomulag sem Ísland, Noregur, Bretland og Færeyjar hafa gert um skiptingu og stjórn á veiðum á makríl. Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, segir tvennt við það athuga segja samkomulagið sögulegt. Áður hafi verið gert hlutasamkomulag þótt Ísland eigi í fyrsta sinn þátt í slíku. Í annan stað þá hafi það verið viðurkennt frá 2010 Ísland strandríki í makríl og það tekið þátt í viðræðum um hvernig beri skipta þessum deilistofni.

Einn afdrifaríkasti leiðtogafundur Evrópusambandsins í langan tíma hefst á fimmtudaginn, þar sem tekin verður ákvörðun um fjárhagslegan stuðning við Úkraínu næstu árin. Enn er verið semja um skilyrði þess nýta frysta fjármuni rússneska seðlabankans til setja saman risastórt lán - og það er nánast útilokað öll aðildarríki bandalagsins samþykki þennan ráðahag.

Frumflutt

16. des. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,