Átök í Flokki fólksins, náttúru- og innviðagjald
Í byrjun árs sagði Guðmundur Ingi Kristinsson af sér sem mennta- og barnamálaráðherra. Nokkrum dögum síðar sagði Guðmundur Ingi að Inga Sæland formaður flokksins hefði krafist afsagnar…
Hvað felst í sameiginlegri fiskveiðistefnu Evrópusambandsins og er hægt að fá varanlegar undanþágur frá henni? Um þetta er tekist á í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna við ESB. Gunnar Þór Pétursson lagaprófessor við Háskólann í Reykjavík og sérfræðingur í Evrópurétti segir engan vafa leika á því að mögulegt sé að semja um ýmsar undanþágur og sérlausnir, þótt það verði ekki endilega fyrirhafnarlaust. Fyrir slíku séu fjölmörg fordæmi.
Umsjón: Ævar Örn Jósepsson
Tæknimaður: Markús Hjaltason

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.