• 00:00:25Ferðalög forseta
  • 00:05:25Norska stjórnin
  • 00:09:33Aftökur í Bandaríkjunum

Spegillinn

Ferðalög forseta, norska stjórnin springur, aftökur í Bandaríkjunum

Forsetaskrifstofan veitti óskýr svör við fyrirspurnum um hvar Halla Tómasdóttir, forseti íslands, hefði verið þegar minningarathöfn um helförina í Auschwitz fór fram á mánudag. Freyr Gígja Gunnarsson fann svarið í Stjórnartíðindum.

„Þetta er ekki niðurstaðan sem ég hefði óskað mér,“ sagði Jónas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs, á fréttafundi eftir ljóst var stjórn hans var sprungin. Hann sagði samvinnu og vináttu flokkanna sem henni stóðu - og þeirra Trygve Slagsvold Vedum, formanns Miðflokksins - hafa verið traust og honum mikils virði - og væri það enn. Það breytti því þó ekki stjórnin sprakk eins og spáð hafði verið. Støre situr þó áfram á stóli forsætisráðherra. Við tekur líf í minnihlutastjórn Verkamannaflokksins og löng kosningabarátta því ekki rjúfa þing. Kosið verður til nýs Stórþings 8. september í haust. Gísli Kristjánsson segir frá.

Aftökur dauðadæmdra fanga voru teknar upp nýju í Bandaríkjunum 1976, eftir nokkurra ára hlé vegna réttaróvissu. Frá þeim tíma hafa um 8.500 manns verið dæmdir til dauða þar í landi og rúmlega 1.600 þeirra verið teknir af lífi. Rannsóknir hafa sýnt fælingarmáttur dauðarefsingar er enginn. Vitað er kostnaðurinn er svimandi hár. Og það sem líka er vitað er, um það bil einn af hverjum átta föngum sem dæmdir hafa verið til dauða í Bandaríkjunum frá 1973 hafa verið hreinsaðir af sök. Ekkert af þessu kom þó í veg fyrir það, Donald Trump, nýskipaður Bandaríkjaforseti, gerði það einu sínu fyrsta embættisverki skipa fyrir um auka skuli áherslu á dæma fólk til dauða hvenær sem lög leyfa - og fullnusta skuli þá dóma, svikalaust. Ævar Örn Jósepsson ræddi þetta við Evu Einarsdóttur, formann Íslandsdeildar Amnesty International.

Umsjón: Ævar Örn Jósepsson

Tæknimaður: Jón Þór Helgason

Frumflutt

30. jan. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,